12 leiðir að hamingju

Hugleiðingar Guðjóns

16.03.2008 17:38:00 / gudjonm

BÆBÆ

hættur með þetta blogg.....kíkið á nýja svæðið mitt    http://gudjonm.xblogg.is/

» 0 hafa sagt sína skoðun

23.02.2008 19:46:38 / gudjonm

fótbrot...

Ljótt þetta brot í dag... Ég held að ég hafi aldrei séð eins ljótt fótbrot,  löppin næstum af bara. mikið skil ég vel leikmenn Arsenal að hafa verið hálf rotaðir í leiknum....

» 1 hafa sagt sína skoðun

06.02.2008 19:22:22 / gudjonm

Barnaleg keppni

Ég og bróðir minn erum í barnalegri keppni. það er skoðunarkönnun hérna til hliðar um hvor okkar sé betri. Ég hvet ykkur til að kjósa mig. enda tel ég mig vera mjög góðan kost

» 0 hafa sagt sína skoðun

01.02.2008 18:21:22 / gudjonm

Blogg fyrir stelpuna sem á sama afmælisdag og ég....

Þetta blogg kemur fyrirsögnini ekkert við...

Ég var einusinni spurður hvort ég hefði verið giftur Britney Spears,  eftir að ég hafði rakið raunir mínar fyrir einum samnemanda mínum.  Mér fannst það fyndið þá, en ekki í dag.  Ég fór að hugsa um hversu mikill harmleikur þetta er fyrir Britney oh hennar fjöldskyldu.  Hún á 2 börn held ég sem hún getur ekki hitt vegna þess að hún hefur ekki heilsu til þess. Ég er viss um að börnin þrá ekkert meira en að fá að hitta mömmu sína, geta treyst á hana og notið þess að vera hjá henni.  Britney á foreldra, þessir foreldrar eins og vonandi flestir foreldrar þrá að sjá að hún njóti sín og verði hamingjusöm, sátt í eigin skinni.  Svo þegar svona Poppstjörnur eru að ræða, þá er heilt fyrirtæki í kringum mannesku eins og Britney, fjöldi manns í vinnu sem treista á það að fá vinnu hjá henni, en fá líklega ekki næstu vikurnar.  

 

En aðeins af mér... Ég er í skólanum eins og vanalega, gengur bara ágætlega, En mikið hlakkar mér til að fara að vinna í sumar, vinna við það sem ég er að læra.  

Fjölskyldan hérna í Jórufellinu hefur það fínt bara, allir sáttir og ánægðir, mikill spenningur er fyrir öskudeginum, en það verða 2 sjóræningjar og ein djöflaprinsessa  hérna á svæðinu.   

Ein saga hérna í lokin...  Inga Hanna fór með krakkana í fótbolta um daginn, Ísar var í Arsenal bol, Kristinn var í Man Utd bol og Talía í svona stuttum kjól.  Ísar fór monntinn til þjálfarans og benti honum á það að hann væri nú í Arsenal bol, Kristinn kom strax á eftir honum og sagðist vera í Man Utd bol, svo kom Talía montnust af þeim og sagði með sinni skrækróma röddu, Hæ ég er í kjól... þetta var víst mjög fyndið.

Hilsen

Guðjón 


» 1 hafa sagt sína skoðun

10.01.2008 20:04:34 / gudjonm

nonni í næsta húsi

Nonni í næsta húsi sem er húsasmiður að mennt hefur alltaf verið iðinn strákur. Fyrir nokkrum árum hafði honum tekist að aura saman einni milljón króna með miklu striti og sparsemi.

Nonni hafði alla tíð heyrt að það væri miklu líklegra til árangurs að vinna með höfðinu en með höndunum. Honum fannst komið nóg af þessari handavinnu og tók aurana sína og fór til bankastjórans með þá því hann vildi fara að fjárfesta eins og aðrir.

"Sæll Nonni minn. Hvað er hægt að gera fyrir þig?", sagði bankastjórinn. "Sko. Mig langar til að kaupa mér hlutabréf fyrir 10 milljónir", sagði Nonni. "Ég á hérna eina milljón og þú þarft að lána mér 9 milljónir." Ég geri það fyrir þig Nonni minn því þú ert góður viðskiptavinur, og svo tek ég veð í hlutabréfunum auðvitað." "Gott og vel", sagði Nonni.

Nú fer svo Nonni og kaupir hlutabréf fyrir 10 milljónir. Svo líður 1 ár. Eftir árið hefur hlutabréfavísitalan hækkað um 30% svo Nonni selur hlutabréfin sín fyrir 13 milljónir og borgar lánið sem hann tók upp á 9 milljónir. Hann á þá núna 4 milljónir.

Nonni fer nú aftur með aurana sína til bankastjórans því hann vill halda áfram að fjárfesta eins og aðrir.

"Sæll Nonni minn. Hvað er hægt að gera fyrir þig?", sagði bankastjórinn. "Sko. Mig langar að kaupa mér hlutabréf fyrir 40 milljónir", sagði Nonni. "Ég á hérna 4 milljónir og þú þarft að lána mér 36 milljónir." Ég geri það fyrir þig Nonni minn því þú ert góður viðskiptavinur, og svo tek ég veð í hlutabréfunum auðvitað." "Gott og vel", sagði Nonni.

Nú fer svo Nonni og kaupir hlutabréf fyrir 40 milljónir. Svo líður 1 ár. Eftir árið hefur hlutabréfavísitalaln hækkað um 30% svo Nonni selur hlutabréfin sín fyrir 52 milljónir og borgar lánið sem hann tók upp á 36 milljónir. Hann á þá núna 16 milljónir.

Nonni fer nú aftur með aurana sína til bankastjórans því hann vill halda áfram að fjárfesta eins og aðrir.

"Sæll Nonni minn. Hvað er hægt að gera fyrir þig?", sagði bankastjórinn. "Sko. Mig langar að kaupa mér hlutabréf fyrri 160 milljónir", sagði Nonni. "Ég á hérna 16 milljónir og þú þarft að lána mér 144 milljónir." Ég geri það fyrir þig Nonni minn því þú ert góður viðskiptavinur, og svo tek ég veð í hlutabréfunum auðvitað." "Gott og vel", sagði Nonni.

Nú fer svo Nonni og kaupir hlutabréf fyrir 160 milljónir. Svo líður 1 ár. Eftir árið hefur hlutabréfavísitalan enn hækkað um 30% svo Nonni selur hlutabréfin sín fyrir 208 milljónir og borgar lánið sem hann tók upp á 144 milljónir. Hann á þá núna 64 milljónir.

Nonna hefur tekist að 64 falda eign sína á 3 árum. Nonni fer nú að verða öruggur með sig og fer á Sýningu hjá Toyota og pantar sér nýja Landcruiser á 11 milljónir. Afganginn af aurunum tekur hann og fer með til bankastjórans því hann vill enn halda áfram að fjárfesta eins og aðrir.

"Sæll Nonni minn. Hvað er hægt að gera fyrir þig?", sagði bankastjórinn. "Sko. Mig langar að kaupa mér hlutabréf fyrir 500 milljónir", sagði Nonni. "Ég á hérna 50 og svo á ég 3 í vasanum sem ég ætla að ferðast fyrir á árinu og þú þarft að lána mér 450 milljónir." Ég geri það fyrir þig Nonni minn því þú ert góður viðskiptavinur, og svo tek ég veð í hlutabréfunum auðvitað." "Gott og vel", sagði Nonni.

Nú fer svo Nonni og kaupir hlutabréf fyrir 500 milljónir. Svo líður 1 ár. Eftir árið hefur hlutabréfavísitalan ekki hækkað heldur lækkað um 30% svo Nonni skuldar bankanum 450 milljónir en hlutabréfin hans eru metin á 350 milljónir. Hann skuldar því bankanum 100 milljónir. Bankinn tekur hlutabréfin til sín. Nonni er í vanda. Sápukúlan er sprungin. Hann er búinn að eyða 3 milljónunum í sig og kelluna og Lancruserinn selst á 9 milljónir. Húsið hans fer á 25 milljónir og hann skuldar bankanum enn 66 milljónir.

Nonni stefnir í gjaldþrot en vill ekki viðurkenna það.

Íslenska sápukúluævintýrinu hans Nonna er lokið.

» 1 hafa sagt sína skoðun

30.12.2007 11:33:34 / gudjonm

Á TOPPINN

  1. Arsenal      20 14  5  1  40:16  47
2. Man.Utd. 20 14 3 3 37:11 45
3. Chelsea 20 12 5 3 31:15 41
4. Liverpool 18 10 6 2 33:12 36
5. Man.City 19 10 5 4 27:22 35
6. Everton 20 10 3 7 35:22 33
7. Aston Villa 20 9 6 5 35:26 33
8. Portsmouth 20 8 7 5 29:20 31
9. West Ham 19 8 5 6 25:17 29
10. Blackburn 19 7 6 6 25:27 27
Ekki leiðinlegt að fara inn í nýja árið á toppnum.  
Eftir frábærann seinni hálfleik, 
þá unnu arsenal Everton 4-1.  
En ég er búinn að eigia frábær jól. og stefnir í góð áramót.
 fékk fullt af fallegum jólagjöfum, bæði efnislegum og andlegum. 
þangað til næst. áfram ARSENAL 

» 0 hafa sagt sína skoðun

23.12.2007 21:31:23 / gudjonm

Ég

 

" alt="" />

» 1 hafa sagt sína skoðun

23.12.2007 12:07:05 / gudjonm

Vitafjörður

Þegar ég verð orðinn ríkur, þá ætla ég að gera margt. Efst á listanum er að kaupa heilan fjörð.  Ég ætla að skíra þann fjörð Vitafjörð.  Ég ætla að byggja vita innst inn í fyrðinum og búa í honum.  En afhverju ætla ég að gera þetta????  Jú Þá get ég kallað mig Vitfyrðing, ekki fitfyrring, eins og vera fyrrtur viti heldur vitfyrðing, en hver er munurinn þegar maður segir þessi orð??  

 Svona rugl dettur mér í hug þegar ég er andvaka eins og er búið að vera næstum hverja einustu nótt síðustu 2 mánuði.

Í dag er þorláksmessa og  krakkarnir eru hjá mömmu sinni. ég svaf í 11 tíma í nótt og það var hressandi.  Allur jólaundirbúningur er búinn og bara eftir að skreita jólatréið.  Möndlugrautur hjá mömmu á morgunn og síðan eru það bara jólin.  Verð með stórfamilíuna í mat og það er bara gaman.  Þetta eru fyrstu jólin í mörg ár sem mér hlakkar virkilega til.  en nóg um það.  Ég óska ykkur gleðilegra jóla. Verið góð við hvort annað og við sjálf ykkur.

Svo eru það persónuleg skilaboð til hr. Wenger.  Gangi þér og þínum vel um jólin og ekki valda mér vonbryggðum. svona ef þú skyldir vera að lesa þetta.    

Jólakveðja Guðjón og famílí

 


» 0 hafa sagt sína skoðun

19.12.2007 17:58:44 / gudjonm

heilir 8

ég er svo monntinn.  ég var að fá út úr prófunum og meðaleinkunnin er 8.  frekar sáttur með það.  Ég fór með Ísar til augnlæknis í fyrradag og drengurinn þarf gleraugu.  Við fórum og versluðum gleraugu á drenginn áðan og fáum þau á morgunn.  Ísar er bara spenntur yfir því að fá gleraugun, en enþá spenntari var hann yfir klútnum sem hann fær til að halda þeim hreinum.  en þetta er nóg í bili. Áfram Arsenal...

» 0 hafa sagt sína skoðun

16.12.2007 20:17:27 / gudjonm

Viðburðaríkir dagar

Prófin búinn og fæ einkunnir á miðvikudaginn.  Gekk vel held ég bara. náði allavega prófinu sem ég var hræddastur um að falla í.  Inga Hanna átti afmæli í gær svo að við héldum kaffisamsæti og buðum fjölda manns í það. Afmælið gekk vonum framar. Krakkarnir voru hjá mömmu sinni aðfaranótt laugardags og komu sæl og ánægð til okkar aftur í gær. Enda gat það ekki annað verið, komu beint í kökur og fínerí.  Svo var dagurinn í dag tekinn rólega, legið í leti og litað með krökkunum. svo klukkan 16:00 í dag fór þessi rólegheita dagur beint í ruslið.  Ég hef sjaldan verið svona spenntur yfir fótboltaleik eins og þessum sem var í dag.  fjölmörg færi og mikil spenna fram á seinustu mínútu.  en Leikurinn endaði þannig að Arsenal vann 1-0.  eftir leikinn var mikið spennufall og ég sofnaði næstum því.  En ég er að vinna í því að heilaþvo börnin mín, til að halda með Arsenal, ég er búin að ná Ísari og Talíu, en Kristinn segist halda með sama liði og afi sinn, en það er bara tímaspursmál hvenar hann snýst.  ég stefni á að taka klukkutíma á dag í Arsenalfræðslu á dag næstu vikurnar, svo eftir það, þá þarf enginn að efast.  

en þangað til næst, yfir og út 


» 1 hafa sagt sína skoðun

01.12.2007 21:45:48 / gudjonm

Lífið

Ég var að horfa á viðtalið sem var tekið við fólkið sem býr í tjaldi í laugardalnum, ég man ekki hvað það heitir, en þetta er par sem er búið að búa í tjaldinu síðan í júní.  

Ég vorkenni þessu fólki. en það skal enginn segja mér það að þetta fólk hefur fengið sín tækifæri í lífinu. Sjúkdómurinn alkahólismi er hræðilegur, sem þetta fólk er með eins og margir aðrir.  Þessi sjúkdómur sviftir fólki öllu sem það á, sama hvort að sé veraldlegar eigur eða andlegar eigur.  sjúkdómurinn alkaholismi sviftir þeim sem erum meðan öllu trausti og öllum heilbryggðum samskiftum.  Þetta er fjölskyldusjúkdómur, það þýðir að allir sem eru í kringum alkóhólistan verða fyrir áhrifum.  En sem betur fer er til lausn frá þessum sjúkdómi sem margir hafa nýtt sér og áunnið sér miklu betra líf í staðinn.  En ef ekkert er gert í því að vinna bug á þessum sjúkdómi, þá endar hann með geðveiki eða dauða.  Og þið sem eruð að lesa þetta, þá er þetta ekkert grín að eiga við þennan sjúkdóm.  fyrst er það geðveikin, svo drekkur fólkið lengur og endar með því að deyja úr þessu. það tekur langan tíma og það er kvalarfullt, bæði fyrir sjúklinginn og þá sem standa honum næst.  

En svo ég fari í eithvað skemmtilegra, þá erum við langt komin með jólagjafir og annan jólaundirbúning.  við stefnum á að klára þetta um næstu helgi.  

4 próf í næstu viku og ég er ekki farinn að finna fyrir stressi enþá, en ég ætla að leggja mig fram og læra á morgunn og mánudaginn.  

Arsenal vann Aston Villa áðan 2-1 fínn útisigur og ég sá það sem ég vildi sjá, mínir menn lentu undir og náðu að skora 2 mörk eftir það. Aston Villa voru mun betri í seinni hálfleik, en Arsenal náðu að halda fengnum hlut. að spila ílla og vinna samt er það sem meistaralið þarf.  ég get ekki verið annað en bjartsýnn á dollu í vor...  


» 1 hafa sagt sína skoðun

29.11.2007 13:47:00 / gudjonm

ef kona væri maður og ef maður væri kona,

TOPP TÍU listinn yfir það sem karlar myndu gera ef þeir væru með píku í einn

dag:


10. Byrgja sig upp af agúrkum og banönum.

9. Sitja á hækjum sér yfir spegli í a.m.k. klukkustund.

8. Athuga hvort þeir geti núna loksins farið í splitt

7. Athuga hvort í raun og veru sé hægt að skjóta borðtenniskúlu metra vegalengd með henni.

6. Krossleggja lappir án þess að hagræða kynfærunum fyrst.

5. Lenda á séns á vínveitingastað fyrir hádegi.

4. Fá raðfullnægingu og heimta aðra fyrir svefninn.

3. Fara í rannsókn til kvensjúkdómalæknis og láta taka hana upp á myndband.

2. Biðja til Guðs um að fá brjóst líka.

1. Loksins finna G-blettinn.


TOPP TÍU listinn yfir það sem konur myndu gera ef þær væru með typpi í einn

dag:


10. Fá stöðuhækkun.

9. Fá blowjob.

8. Skilja hvað er svona áríðandi við að fá úr honum.

7. Pissa standandi og halda uppi samræðum við aðra karlmenn á meðan.

6. Uppgötva af hverju bunan lendir stundum fram hjá.

5. Fara að sofa strax eftir kynlíf í stað þess að ræða sambandið.

4. Klóra sér í kynfærunum á almannafæri

án þess að hafa áhyggjur af því hvort einhver taki eftir því.

3. Hoppa upp og niður með standpínu til að komast að því hvort það sé eins kjánalegt að upplifa það og að sjá það.

2. Gera sér grein fyrir vísindalegri skýringu þess að ljósbrot í reglustiku gerir það að verkum að karlmanni sýnist hún mæla getnaðarlim a.m.k. þremur sentímetrum lengri en hann í raun og veru er.

1. Loksins fatta hvernig það er að vera með heilann í klofinu


» 0 hafa sagt sína skoðun

25.11.2007 18:40:41 / gudjonm

Ísland vs. Danmörk

Ég held að við Íslendingar hafi gert mistök á sínum tíma þegar við vildum sjálfstæði frá dönum... jú sjáið þið til. hvernig er staðan á Íslandi í dag??  Húsnæðismál eru alveg út á túni, hvað er það að maður þurfi að hafa 3/4 úr milljón á mánuði til að kaupa íbúð. það er bara ekki bjóðandi venjulegu fólki.  Bankarnir á Íslandi okra á okkur lýðnum. sama hvaða ríkisstjórn er við völd, þá er alltaf sama kjaftæðið í gangi. hvað er málið, það er verið að rífast út af þvi hvort á að leifa áfengi í búðir á meðan þúsundir manns eru á biðlistum til að fá húsnæði. ríkið neitar að niðurgreiða talþjálfun fyrir fjölskyldur barna sem þurfa á því að halda.  það eru 400 börn sem eru á biðlista og þurfa á þessari þjálfun að halda, á meðan þau bíða, geta þau ekki tjáð sig eins og þau ættu að geta.  þetta er bara rétt byrjunnin hjá mér.    

 

Ef við værum enþá undir stjórn dana, þá væri bjórinn laungu kominn í verslanir, og hann væri jafn ódýr og mjólk. húsnæðiskerfið er miklu betra á öllum norðurlöndunum en á íslandi.  Við ættum drottningu.  félagslega kerfið væri mun skárra.  Menntun væri meiri og eldra fólki er hjálpað meira í danmörku til að mennta sig, þú ert ekki á námslánum í danmörku, heldur bara styrkjum eða launum.  

svona gæti ég haldið lengi áfram, en hef varla geð í mér að gera það. ég segi bara SKAMM Íslenskir ráðamenn.


» 1 hafa sagt sína skoðun

19.11.2007 15:52:20 / gudjonm

Lífið eins og ég sé það

Ég er búinn að vera í bælinu síðustu daga með lungnabólgu.  það er svoldið töff að vera með lungnabólgu, ég hef aldrei fengið svoleiðis áður. þetta er eins og missa fyrstu tönnina eða að láta sauma sig í fyrsta skiptið.  Nú er ég orðinn karlmaður, búinn að fá lungnabólgu og lifði það af, þó það sé nú algengara.

 Annars er bara fátt að frétta, ég ætla að vera sem mest heima þessa vikuna og mæta síðan í skólan í upprifjun, seinustu vikuna.

Prófin byrja hjá mér 4.des og klárast öll nema 1 á 3 dögum.  síðan ætla ég bara að vera heima eftir próf og udnirbúa komu jólanna, gera eithvað skemmtilegt með krökkunum og njóta þess að vera til um hátíðirnar.  

Ég er búinn að fá vinnu næsta sumar og er kominn á samning, sem er bara frábært. stefni á að klára námið á þremur og hálfu ári, en það kemur betur í ljós í vor.  

Danmörk-Ísland á miðvikudag, mín spá er 6-1 fyrir dani.  ég hef ekki mikla trú á Landsliði þar sem leikmönnum lýðst að hafa ástundun eins og þeim henntar.  það er greinilega enginn pungur undir KSÍ.  þetta er stjórnlaust eftir að Eggert Magnússon hætti..  

Yfir og út


» 1 hafa sagt sína skoðun

24.10.2007 20:23:31 / gudjonm

Vá vá vá

Loksins nenni ég að blogga!!!

Haustönn hálfnuð og námsárangur fram úr björtustu vonum.   Kallinn er bara að læra að verða pípari.  Kominn með konu í líf sitt og hún er að flytja inn.  Börnin dafna vel kötturinn líka.  

En ég var að spá í einu, hafa börn landsins ekki átt leikföng þangað til núna eða hvað, það opnaði erlend dótabúðakeðja í Kópavogi um síðastliðnu helgi og það var verslað með leikföng fyrir 70 millur takk fyrir, hvað er að fólki.  Það var næstum slegið heimsmet, við vorum bara 200 þús frá því að slá út opnunina í New York á fyrsta degi. og ég er nokkuð viss um að það eru mun fleira fólk þar í borg en hérna.....

en hér kemur gáta.

Oft þú hafðir himininn að þaki þínu um nætur
og þráðir aðeins frelsi og feragrið
undir aldrei búandahokri, festi hvergi rætur
því hugur stefndi út á önnur svið.

úr hvaða lagi er þetta textabrot og eftir hvern er það?????

 

yfir og út  


» 4 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3 ... 12
Heimsóknir
Í dag:  9  Alls: 62768
Könnun
Hvor er betri?

Textabox
tenglar